Aubameyang keppir við Liverpool mennina

Sadio Mané og Mohamed Salah koma til greina sem knattspyrnumaður …
Sadio Mané og Mohamed Salah koma til greina sem knattspyrnumaður ársins í Afríku. AFP

Afríska knattspyrnusambandið hefur tilnefnt þrjá leikmenn sem koma til greina sem leikmaður ársins í Afríku.

Leikmennirnir þrír eru Egyptinn Mohamed Salah, Liverpool, Senegalinn Sadio Mané, Liverpool og Gabonmaðurinn Pierre-Emerick Aubameyang leikmaður Borussia Dortmund.

Þetta er í fyrsta sinn sem þeir Salah og Mané eru tilefndir en Aubameyang val valinn leikmaður ársins í Afríku árið 2015 og hafnaði í öðru sæti 2014 og 2016.

Kjörinu verður lýst þann 4. janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert