Dregið í Meistaradeildinni á morgun

Liverpool heldur uppi heiðri ensku liðanna í Meistaradeildinni.
Liverpool heldur uppi heiðri ensku liðanna í Meistaradeildinni. AFP

Dregið verður til undanúrslitanna í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss í hádeginu á morgun.

Liðin sem eru í undanúrslitunum:

Real Madrid
Liverpool
Bayern München
Roma

Leikirnir í undanúrslitunum fara fram þriðjudaginn 24. apríl og miðvikudaginn 25. apríl og síðari leikirnir verða 1. og 2. maí. Úrslitaleikurinn fer svo fram á Olimpiyskyi stadium í Kiev í Úkraínu laugardaginn 26. maí.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert