Barcelona með þægilegan sigur

Leikmenn Barcelona fagna marki í dag.
Leikmenn Barcelona fagna marki í dag. AFP/Lluis Gene

Barcelona tók á móti Getafe spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag og lauk leiknum með sannfærandi sigri heimamanna, 4:0.

Brasilíumaðurinn Raphinha kom Barcelona yfir á 20. mínútu. Joao Felix skoraði annað mark heimamanna á 53. mínútu og Frank de Jong bætti við því þriðja á 61. mínútu. Það var svo Fermin Lopez sem skoraði fjórða mark heimamanna á 91. mínútu.

Eftir leikinn er Barcelona fimm stigum á eftir Real Madrid í 2. sæti deildarinnar með 57 stig en Getafe er í 10. sæti með 34 stig, sex stigum á eftir 6. sætinu sem gefur sæti í Sambandsdeild Evrópu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka