Vonarstjarna Brasilíu tryggði sigurinn á Wembley

Vinicius Jr. knúsar markaskorarann Endrick.
Vinicius Jr. knúsar markaskorarann Endrick. AFP/Ben Stansall

Brasilía vann England, 1:0, í vináttulandsleik þjóðanna í knattspyrnu karla á Wembley í Lundúnum í kvöld. 

Sigurmark Brasilíu skoraði hinn 17 ára gamli Endrick, verðandi leikmaður Real Madrid, á 80. mínútu leiksins. 

Endrick fékk síðan tækifæri til að tvöfalda forystu Brasilíu undir blálok leiks en Jordan Pickford varði frá honum. Þrátt fyrir það, söguleg stund fyrir táninginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert