Cristiano Ronaldo breytti áliti hans

Cristiano Ronaldo hefur farið mikinn í Sádi-Arabíu.
Cristiano Ronaldo hefur farið mikinn í Sádi-Arabíu. AFP

Portúgalski knattspyrnuþjálfarinn José Mourinho gæti séð sig stýra liði í Sádi-Arabíu vegna samlanda síns Cristiano Ronaldo.

Mourinho var rekinn frá Roma á Ítalíu í byrjun árs og hefur ekki farið í felur með ósætti sitt. 

Leitar hann nú að nýju starfi og í viðtali sagðist hann hafa breytt áliti sínu á að stýra í Sádi-Arabíu vegna Cristiano Ronaldo, sem opnaði augu hans fyrir tækifærunum þar. 

Ronaldo gekk til liðs við sádiarabíska liðið Al-Nassr undir lok ársins 2022. Hafa fjölmargir leikmenn síðan fylgt í hans fótspor. 

José Mourinho.
José Mourinho. AFP/Isabella Bonotto
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert