Andri í liði umferðarinnar

Andri Lucas Guðjohnsen.
Andri Lucas Guðjohnsen. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Andri Lucas Guðjohnsen, landsliðsmaður í knattspyrnu, er í úrvalsliði umferðarinnar í 25. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar.

Það er deildin sjálf sem velur liðið og birtir á heimasíðu sinni og Andri er þar í fremstu víglínu ásamt Andreas Cornelius, framherja FC Köbenhavn.

Andri skoraði mark Lyngby þegar liðið gerði jafntefli, 1:1, við Hvidovre um helgina. Það var hans 10. mark í 21 leik með liðinu í deildinni í vetur og hann er langmarkahæsti leikmaður Lyngby á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert