NBA: Denver og Phoenix áfram

Þeir Raja Bell L, Amare Stoudemire C og Steve Nash, …
Þeir Raja Bell L, Amare Stoudemire C og Steve Nash, leikmenn Phoenix, óska hver öðrum til hamingju. Reuters

San Antonio Spurs og Phoenix Suns komust í nótt í næstu umferð úrslitakeppni bandarísku NBA körfuboltadeildarinnar. San Antonio vann Denver Nuggets 93:78 og viðureign liðanna 4:1 en San Antonio tapaði fyrsta leiknum á heimavelli. Phoenix vann LA Lakers 119:110 og sömuleiðis viðureignina 4:1. Liðið mætir

San Antonio og Phoenix munu mætast í undanúrslitum Vesturdeildar NBA. Fyrsti leikurinn verður í Phoenix á sunnudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert