Sigur í fyrstu umferð hjá Magnúsi og Helga

Badmintonmennirnir Magnús Ingi Helgason og Helgi Jóhannesson unnu Slóvena í fyrstu umferð í tvíliðaleik á alþjóðlega badmintonmótinu í Dublin á Írlandi síðdegis í dag í hörkuviðureign. Magnús og Helgi hrósuðu sigri í oddalotu og leika á eftir gegn Dönunum Mikkel Elbjörn og Mads Pieler Kolding í 16 manna úrslitum.

Magnús og Helgi unnu fyrstu lotuna gegn Slóvenunum mjög naumlega, 21:19, töpuðu þeirri næstu, 21:18, en höfðu betur í oddalotu , 21:8. Viðureignin stóð yfir í 40 mínútur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert