Ukhov yfir 2,40 í hástökki

Ivan Ukhov
Ivan Ukhov Reuters

Rússneski hástökkvarinn Ivan Ukhov gerði sér lítið fyrir á innanhússmóti í frjálsum í Aþenu á miðvikudaginn og vippaði sér yfir 2,40 metra. 

Ukhov, sem er 22 ára, vakti mikla athygli í september á síðata ári þegar hann mætti til leiks á alþjóðlegu móti í Sviss, vel við skál. Nú virðist hann hins vegar hafa verið allsgáður.

Hann er ellefti hástökkvarinn í sögunni sem fer yfir þessa hæð og aðeins fjórir hafa stokkið hærra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert