Tyson Gay náði besta tíma ársins

Tyson Gay (t.h.) og Asafa Powell eigast við á hlaupabrautinni …
Tyson Gay (t.h.) og Asafa Powell eigast við á hlaupabrautinni í kvöld. Reuters

Bandaríski spretthlauparinn Tyson Gay náði besta tíma ársins og sjötta besta tíma sögunnar á Gullmóti í frjálsíþróttum í Róm í kvöld. Gay hljóp á 9,77 sekúndum og sló Asafa Powell frá Jamaíka ref fyrir rass á síðustu 40 metrunum en Powell kom í mark á 9,88 sekúndum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert