Gunnar vann í 1. lotu

Gunnar Nelson.
Gunnar Nelson.

Íslenski bardagaíþróttamaðurinn Gunnar Nelson vann enska bardagakappann Eugene Fadiora í fyrstu lotu í Bammakeppninni í blönduðum bardagaíþróttum (MMA) í gærkvöldi.

Fadiora sem barðist í sínum heimabæ í Birmingham á Englandi mátti játa sig sigraðan á aðeins 3 mínútum og 51 sekúndu. Var þetta fyrsta tap hans á ferlinum enda talinn einn af 5 bestu veltivigtarmönnum Englendinga og sá efnilegasti.

Gunnar er enn ósigraður á sínum atvinnumannaferli með 8 sigra. Bardaginn fór fram í einni stærstu íþróttahöll Evrópu, National Indoor Arena, fyrir framan þúsundir áhorfenda sem flestir voru á bandi heimamannsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert