FSÍ vill að ÍSÍ kjósi íþróttafólk ársins

Heiðar Helguson var kjörinn íþróttamaður ársins 2011 af Samtökum íþróttafréttamanna.
Heiðar Helguson var kjörinn íþróttamaður ársins 2011 af Samtökum íþróttafréttamanna.

Þing Fimleikasambands Íslands sem haldið var í gær, laugardag, samþykkti ályktun þar sem skorað var á Íþrótta- og ólympíusamband Íslands að endurskoða aðkomu sína að kjöri íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins.

Ályktunin er svohljóðandi:

„Fimleikaþing FSÍ skorar á stjórn ÍSÍ að endurskoða aðkomu sína að kjöri íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins. 

Almenningur telur með réttu að ÍSÍ hafi beina aðkomu að kjöri íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins hverju sinni þar sem bæði merki ÍSÍ og styrktaraðila þess hafa verið mjög áberandi á hátíðinni sem viðurkenningin hefur verið veitt. 

Um er að ræða mjög þröngan hóp einstaklinga sem við núverandi aðstæður kemur að vali á íþróttamanni ársins og er það gert í umboði fyrirtækja sem þeir starfa hjá.  Nú er svo komið að ein fyrirtækjasamstæða heldur á nærri helmingi atkvæða í framangreindu kjöri. 

Sérsambönd innan raða ÍSÍ kjósa almennt íþróttamann og íþróttakonu sem skarað hafa framúr á umliðnu ári hverju sinni.  Það gerir ÍSÍ hins vegar ekki sjálft.  Með nútíma tækni á ÍSÍ að vera leikur einn að endurskoða aðkomu sína að kjöri íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins og kjósa sjálf sinn eigin íþróttamann og íþróttakonu ársins hverju sinni, sem getur grundvallast á því vali sem farið hefur fram innan sérsambanda hverju sinni. 

Sem fjölmennustu félagasamtök landsins á ÍSÍ ekki að framselja umrætt val á íþróttamanni ársins til mjög þröngs hóps einstaklinga heldur setja upp fyrirkomulag með aðstoð nútímatækni þar sem jafnvel allir félagsmenn innan raða ÍSÍ geta komið að vali á íþróttamanni og íþróttakonu ársins, grundvallað á lýðræðislegum vinnubrögðum en ekki sjónarmiðum þröngs hóps einstaklinga sem kjósa í umboði þeirra fyrirtækja sem þeir starfa hjá.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert