Gylfi Þór: Liverpool kemur alveg til greina

Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. Ljósmynd/swanseacity.net

Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, sagði í samtali við mbl.is að ekki væri orðið ljóst hvar hann muni spila á næstu leiktíð. Sem kunnugt er þá er Gylfi samningsbundinn þýska liðinu Hoffenheim og á tvö ár eftir af samningi sínum við félagið en hann var í láni hjá Swansea síðari hluta tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni og gerði þar frábæra hluti.

„Það er bara óvíst á þessari stundu hvar ég kem til með að spila. Ég hafði hug á að spila áfram með Swansea enda var ég virkilega ánægður þar en eftir að Brendan Rodgers fór frá félaginu til Liverpool breyttist staðan varðandi það,“ sagði Gylfi Þór í samtali við mbl.is.

Gylfi hefur á síðustu dögum verið orðaður við Liverpool en Brendan Rodgers hefur látið hafa eftir sér að hann vilji gjarnan fá Gylfa í sínar raðir verði hann á markaðnum.

Spurður hvort það komi til greina að spila með Liverpool sagði Gylfi við mbl.is;

„Ég hef sagt að minn vilji sé að spila áfram í ensku úrvalsdeildinni og Liverpool kemur alveg til greina. Liverpool er stór klúbbur sem á sér glæsilega sögu. Enska úrvalsdeildin er sá vettvangur sem ég vil vera á og vonandi fer svo að ég spili áfram í þeirri deild. Ég býst ekki við því að vera áfram hjá Swansea enda er óvissa í gangi þar og ekki ljóst hver verður knattspyrnustjóri,“ sagði Gylfi.

Hefur þú eitthvað rætt við Brendan um hugsanleg félagaskipti til Liverpool?

„Nei, en ég hafði samband við hann þegar hann var ráðinn knattspyrnustjóri Liverpool. Ég óskaði honum til hamingju og þakkaði honum fyrir frábæran tíma hjá Swansea,“ sagði Gylfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert