Nýtt glæsilegt Íslandsmet hjá Ingibjörgu

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir mbl.is/Árni Sæberg

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir, sundkona úr SH, setti í morgun nýtt glæsilegt Íslandsmet í 50 metra baksundi á HM í sundi í 50 metra laug sem haldið er í Barcelona.

Ingibjörg synti vegalengdina á 28,62 sekúndum og var aðeins 2/100 úr sekúndu frá því að komast áfram en hún endaði í 17. sæti.

Gamla metið sem Ingibjörg átti sjálf og setti á Íslandsmeistaramótinu í apríl var 28,99 sekúndur.

Jacky Pellerin landsliðsþjálfari sagði að sundið hennar hefði verið mjög gott, frábær byrjun og gott úthald.  Sjálf var Ingibjörg nokkuð ánægð en fannst hún hafa getað gert betur í endann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert