Guðrún og Magnús Íslandsmeistarar

Íslandsmeistararnir Magnús K. Magnússon og Guðrún G. Björnsdóttir með bikara …
Íslandsmeistararnir Magnús K. Magnússon og Guðrún G. Björnsdóttir með bikara sína. mbl.is/Kristinn

Guðrún G. Björnsdóttir úr KR og Magnús K. Magnússon urðu Íslandsmeistarar í kvenna- og karlaflokki í einliðaleik í borðtennis.

Guðrún hafði betur gegn Aldísi Rún Lárusdóttir í úrslitaleik í kvennaflokki, 4:1, en loturnar fóru 11:9, 11:5, 7:11, 13:11 og 11:8.

Í karlaflokki hafði Magnús betur á móti á Davíð Jónssyni í úrslitaleik, 4:0, 11:3, 11:9, 11:9 og 11:6. Guðmundur E. Stephensen sem hefur unnið titilinn í karlaflokki síðustu 20 árin var ekki á meðal keppenda að þessu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert