Mögnuð stemning á EM í hópfimleikum - myndband

Úrslit kvennaliða á Evrópumótinu í hópfimleikum eru nú í fullum gangi í Laugardalshöllinni og þegar þetta er skrifað er fyrstu umferð lokið af þremur.

Íslenska kvennaliðið á sem kunnugt er titil að verja en liðið hefur orðið meistari á tveimur síðustu Evrópumótum og getur bætt við þriðja meistaratitlinum í röð síðar í dag.

Uppselt er á Evrópumótið, en komið var fyrir 4 þúsund sæta stúku fyrir keppnina. Íslenska liðið hefur nýlokið sinni fyrstu grein, dýnustökkum, og á meðfylgjandi myndbandi má sjá stemninguna þegar liðið var að ljúka keppni, en hún var vægast sagt mögnuð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert