Trúlofun hjá gullverðlaunahöfum

Laura Trott
Laura Trott AFP

Gullverðlaunahafar úr breska Ólympíuhópnum frá leikunum í London 2012 trúlofuðu sig um jólin eftir því sem fram kemur hjá BBC í dag.

Um er að ræða þau Jason Kenny og Lauru Trott sem unnu til tvennra gullverðlauna hvor í sömu keppnisgreininni; hjólreiðum.

Unnu þau bæði eitt gull í einstaklingskeppni og annað í liðakeppni. Nutu þau mikilla vinsælda á Bretlandseyjum í kjölfar leikanna eins og flestir þeirra sem unnu Ólympíugull á heimavelli í London.

Kenny er 26 ára en hann vann raunar einnig gull í liðakeppni á leikunum í Peking 2008. Trott er 22 ára gömul og hún mun hafa tilkynnt um trúlofunina á Twitter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert