Douglas Costa til Bayern

Douglas Costa, leikmaður brasilíska landsliðsins.
Douglas Costa, leikmaður brasilíska landsliðsins. AFP

Þýska stórveldið, Bayern München, hefur komist að samkomulagi við úkraínska liðið, Shakhtar Donetsk, um kaup á brasilíska leikmanninum, Douglas Costa, en þetta kemur fram á heimasíðu Shakhtar í dag.

Costa, sem er 24 ára gamall, kom til Shakhtar frá Gremio árið 2010, en hann hefur verið potturinn og pannan í spili úkraínska liðsins frá því hann kom.

Hann hefur orðaður við mörg stórlið víða um Evrópu, en Bayern München er búið að vinna kapphlaupið um hann þar sem félagið hefur komist að samkomulagi við Shakhtar um kaup á leikmanninum.

Bayern borgar Shakhtar 30 milljónir evra fyrir Costa, en hann á að baki 9 landsleiki og 1 mark fyrir brasilíska landsliðið. Markið skoraði hann í Suður-Ameríku keppninni fyrir um það bil tveimur vikum síðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert