Þróttur hafði betur í Fagralundi

Blak - blakboltar
Blak - blakboltar

Þróttur frá Neskaupstað vann HK í þremur hrinum í hörkuleik í Mizuno-deild kvenna í blaki í Fagralundi í Kópavogi í dag. Þróttur vann fyrstu hrinuna, 25:22, þá næstu 25:23 og þriðju 25:22, eftir að HK hafði verið yfir lengi vel.

Stigahæstar í liði HK voru Herborg Vera Leifsdóttir með 13 stig og Laufey Björk Sigmundsdóttir með 9 stig. Stigahæstar í liði Þróttar voru Ana Maria Vidal Bouza með 15 stig og María Rún Karlsdóttir með 9 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert