Magnað Íslandsmet Þuríðar (myndskeið)

Þuríður Erla Helgadóttir setti þrjú Íslandsmet í -63 kg flokki á Íslandsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum um helgina.

Þuríður setti met í snörun þegar hún lyfti 84 kg, en met hennar í jafnhendingu vakti ef til vill meiri athygli. Hún lyfti þá 106 kg eftir að hafa verið nánast í engu jafnvægi, en lyftan hefur vakið mikla athygli.

Íslandsmet Þuríðar í jafnhendingu má sjá í myndspilaranum hér að ofan.

Þuríður Erla Helgadóttir með 106 kg.
Þuríður Erla Helgadóttir með 106 kg. Ljósmynd/Skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert