Sunna Rannveig Davíðsdóttir berst við hina bandarísku Mallory Martin á Invicta FC 22 kvöldinu sem fram fer í Kansas í Bandaríkjunum í nótt. Keppt er í MMA eða blönduðum bardagalistum.
Bardaginn er annar bardaginn á atvinnumannaferli Sunnu, sem vann öruggan sigur á Ashley Greenway í september á síðasta ári.
Bardagakvöldið hefst á miðnætti á íslenskum tíma og er bardaginn hjá Sunnu sá þriðji í röðinni af sjö bardögum kvöldins.
Mallory Martin á einnig einn bardaga á sínum atvinnumannaferli, en hún vann hina kínversku Heqin Lin í fyrsta bardaga sínum í desember á síðasta ári.