Kolbeinn í þriðja sæti í Arkansas

Kolbeinn Höður Gunnarsson varð í þriðja sæti á móti í …
Kolbeinn Höður Gunnarsson varð í þriðja sæti á móti í Bandaríkjunum.

Spretthlauparinn Kolbeinn Höður Gunnarsson varð í þriðja sæti í 100 metra hlaupi á Red Wolf Open-mótinu sem fram fór í Arkansas í dag. Kolbeinn Höður hljóp á tímanum 10,63 sekúndum í hlaupinu í dag.

Kolbeinn Höður sem stundar nám í Memphis-háskólanum í Bandaríkjunum var 29 sekúndubrotum á eftir Davon DeMoss sem varð fyrstur og kom var sjónarmun á eftir Davion Taylor sem varð í öðru sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert