McIlroy kominn í annað sætið

Rory McIlroy.
Rory McIlroy. AFP

Norður-Írinn Rory McIlroy er kominn í annað sætið á nýjasta heimslistanum í golfi sem gefinn var út í morgun, eftir sigurinn á Opna breska meistaramótinu í gær, en McIlroy var í áttunda sæti listans fyrir mótið. Hann var síðast í efsta sæti listans í mars 2013 og hefur samtals verið þar í 39 vikur.

Sergio García, sem deildi öðru sætinu í gær, kleif úr níunda sætinu í það fimmta en staða tíu efstu manna er nú þessi:

1. Adam Scott, Ástralíu
2. Rory McIlroy, Norður-Írlandi
3. Henrik Stenson, Svíþjóð
4. Justin Rose, Englandi
5. Sergio García, Spáni
6. Bubba Watson, Bandaríkjunum
7. Matt Kuchar, Bandaríkjunum8. Jason Day, Ástralíu
9. Tiger Woods, Bandaríkjunum
10. Jim Furyk, Bandaríkjunum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert