Efstu kylfingar heimslistans í lok árs

Justin Rose og Henrik Stenson eru báðir á topp 10
Justin Rose og Henrik Stenson eru báðir á topp 10 AFP

Einn norðurlandabúi, Henrik Stenson frá Svíþjóð, er á meðal tíu efstu á heimslistanum í golfi í lok árs 2014. Er hann í 2. sæti á eftir Norður-Íranum Rory McIlroy sem er langefstur á listanum.

Efstu menn á heimslistanum í golfi eru eftirtaldir:

Rory McIlroy, Norður-Írlandi
Henrik Stenson, Svíþjóð
Adam Scott, Ástralíu
Bubba Watson, Bandaríkjunum
Sergio Garcia, Spáni
Justin Rose, Englandi
Jim Furyk, Bandaríkjunum
Jason Day, Ástralíu
Jordan Spieth, Bandaríkjunum
Rickie Fowler, Bandaríkjunum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert