Ólafía og Valdís báðar yfir pari

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. mbl.is/Styrmir Kári

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR lék á +3 eða 72 höggum í dag á fyrsta keppnisdegi Generali de Dinard meistaramótinu sem fram fer í Frakklandi. Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL er einnig á meðal keppenda á þessu móti og lék hún fyrsta hringinn á 74 höggum eða +5.

Mótið er hluti af LET Access atvinnumótaröðinni í Evrópu - sem er næst sterkasta atvinnugolfmótaröð kvenna á eftir sjálfri LET Evrópumótaröðinni.

Ólafía og Valdís þurfa að leika vel á morgun, á öðrum keppnisdegi mótsins, til þess að koma sér í hóp þeirra sem fá að halda áfram á lokakeppnisdagana. Miðað við stöðuna eftir fyrsta hringinn þá er niðurskurðurinn á +2. Ólafía er í 48.-63. sæti af alls 120 keppendum. Valdís er í 76.-83. sæti.  

Valdís og Ólafía hafa báðar fagnað Íslandsmeistaratitlinum í golfi tvívegis, Valdís 2009 og 2012, en Ólafía 2011 og 2014.

Þetta er fyrsta mót keppnistímabilsins en íslensku kylfingarnir ætla að leggja áherslu á LET Access mótaröðina á þessu tímabili. Þetta er í fyrsta sinn sem tvær íslenskar konur eru með keppnisrétt á þessari mótaröð en Valdís Þóra er að hefja sitt annað tímabil á LET Access mótaröðinni.

Stigahæstu keppendurnir á LET Access mótaröðinni í lok keppnistímabilsins vinna sér inn keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni.

Hægt er að fylgjast með gangi mála með því að smella hér.

Golf.is greindi frá.

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert