Aðstæður öðruvísi á Íslandi

Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR hefur leikið vel á erlendri grundu á árinu, bæði í Bandaríkjunum og á Bretlandseyjum. Hann hefur hins vegar aldrei hafnað ofar en í 5. sæti á Íslandsmótinu. 

Guðmundur var spar á yfirlýsingarnar þegar mbl.is ræddi við hann á blaðamannafundi GSÍ um borð í Selfossi, einu flutningaskipa Eimskipa, í gær en sagði gott gengi erlendis þó geta haft góð áhrif á sjálfstraustið. 

Íslandsmótið í höggleik hefst á Akranesi í dag og verða leiknar 72 holur venju samkvæmt. 

Guðmundur Ágúst Kristjánsson
Guðmundur Ágúst Kristjánsson mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert