Ólafía Þórunn lék frábærlega í dag

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék vel í dag.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék vel í dag. mbl.is/Styrmir Kári

Ólafía Þór­unn Krist­ins­dótt­ir, at­vinnukylf­ing­ur úr GR, lék annan hring­inn á LET Access mótaröðinni í Sviss á 69 höggum eða þremur undir pari og er í góðri stöðu fyrir lokadaginn.

Ólafía lék á pari í gær og er því samtals á þremur undir pari. Hún fór upp um 17 sæti í dag og er hún sem stendur í 10. sæti eftir tvo keppnisdaga.

Lokahringurinn fer fram á morgun en þetta er annað mótið hjá Ólafíu á LET Access mótaröðinni á þessu tímabil en mótaröðin er sú næst sterkasta í Evrópu. Ólafía lék á sínu fyrsta móti á Terre Blanche mótinu í Frakklandi í lok mars og þar náði hún fínum árangri og lék á einu höggi undir pari samtals og endaði á meðal 15 efstu.

Alls eru 126 keppendur á þessu móti frá 28 þjóðum. Mótið fer fram á Golf Club Gams Werdenberg í Gams í Sviss. Heildarverðlaunaféð er 4,3 milljónir kr. Margir kylfingar sem eru með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni eru á meðal keppenda á þessu móti. Mótið er því sterkt og gefur mörg stig á heimslistann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert