Ólafía byrjar seint á fyrsta hring í Fife

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í eldlínunni í dag.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í eldlínunni í dag. AFP

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur leik í dag á einu af stóru mótunum í golfinu, Opna breska meistaramótinu, sem fram fer í Fife í Skotlandi næstu fjóra daga.

Hún þurfti ekki að fara langt eftir að hafa lokið keppni með glæsibrag á Opna skoska mótinu sem lauk í North Ayrshire á sunnudaginn en þar náði hún sínum besta árangri frá upphafi, 13.-18. sæti.

Ólafía er seint á ferð í dag, byrjar kl. 12.49 að íslenskum tíma og er í ráshópi með Jennifer Song og Lauru Diaz. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert