Frakkar völtuðu yfir Þjóðverja

Daniel Narcisse skoraði 7 mörk gegn Þjóðverjum.
Daniel Narcisse skoraði 7 mörk gegn Þjóðverjum. Reuters

Fráfarandi Evrópumeistarar Frakka völtuðu yfir heimsmeistara Þýskalands í úrslitaleiknum um bronsverðlaunin á Evrópumótinu í handknattleik í Noregi í dag. Lokatölur urðu 36:26.

Staðan í hálfleik var 18:9 fyrir Frakka en þeir náðu mest 10 marka forystu í hálfleiknum, 16:6. Í seinni hálfleik jókst munurinn enn og var mestur fjórtán mörk, 27:13, en þá tóku Þjóðverjar loks aðeins við sér og löguðu stöðuna.

Olivier Girault skoraði 8 mörk fyrir Frakka, Daniel Narcisse 7 og Nikola Karabatic 6 fyrir Frakka en Torsten Jansen gerði 7 mörk og Pascal Hens 6 fyrir Þjóðverja.

Leikskýrslan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka