Birkir fer frá N-Lübbecke

Landsliðsmarkvörðurinn Birkir Ívar Guðmundsson.
Landsliðsmarkvörðurinn Birkir Ívar Guðmundsson. mbl.is/Brynjar Gauti

Þýska handknattleiksfélagið N-Lübbecke tilkynnti í gær að íslenski landsliðsmarkvörðurinn Birkir Ívar Guðmundsson færi frá félaginu í vor, þegar samningur hans við það rennur út. Birkir hefur varið mark liðsins undanfarin tvö ár.

„Þetta var í raun löngu ákveðið því ég hef ekki áhuga á að standa í þessari botnbaráttu lengur. Hún er niðurdrepandi og ég vil fara eitthvert annað og spila í liði sem er um eða fyrir ofan miðja deild,“ sagði Birkir Ívar við Morgunblaðið og staðfesti að Fram hefði rætt við sig, sem og fleiri íslensk félög.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert