Ísland leikur til úrslita um heimsmeistaratitilinn

Aron Pálmarsson er lykilmaður í U19 ára liðinu
Aron Pálmarsson er lykilmaður í U19 ára liðinu Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Íslenska U19 ára landslið pilta í handknattleik leikur til úrslita um heimsmeistaratitilinn eftir frábæran sigur á Túnisbúum, 33:31, í undanúrslitum mótsins sem fram fer í Túnis. Íslensku strákarnir voru lengi vel undir í leiknum en tókst að knýja fram sigur á lokasprettinum. Andstæðingar þeirra í úrslitunum verða Króatar sem lögðu Svía, 28:25.

Mörk Íslands: Ólafur Guðmundsson 10, Oddur Grétarsson 7, Aron Pálmarsson 5, Heimir Óli Heimisson 3, Stefán Sigurmannsson 3, Guðmundur Árni Ólafsson 3, Örn Ingi Bjarkarson 2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert