Glæsilegt mark Rúnars (myndband)

Rúnar Kárason í leik með Fram á síðustu leiktíð. Hann …
Rúnar Kárason í leik með Fram á síðustu leiktíð. Hann á eitt af fallegustu mörkum 21. umferðar þýsku 1. deildarinnar. Ómar Óskarsson

Stórskyttan Rúnar Kárason hjá þýska handknattleiksliðinu Füchse Berlin skoraði eitt af fimm fallegustu mörkum 21. umferðar þýsku 1. deildarinnar. Markið skoraði Rúnar í leik við Göppingen á útivelli og var 24. mark Berlínarliðsins og hið eina sem hann skoraði í leiknum.

Hægt er að sjá markið með því að smella hér en það er annað í þessari syrpu. 

Rúnar gekk til liðs við Füchse Berlin á síðasta ári og hefur verið vaxandi í leik liðsins eftir því á keppnistímabilið hefur liðið. Dagur Sigurðsson er þjálfari  Füchse Berlin sem er um miðja þýsku 1. deildina. Alexander Petersson gengur til liðs við það í sumar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert