Einar Andri: Þeir voru bara grimmari

Einar Andri Einarsson, annar þjálfara FH, dró ekki dul á að sigur HK 26:23 í Kaplakrika í dag var sanngjarn þegar mbl.is tók hann tali. 

Með sigrinum tók HK forystuna í úrslitarimmu liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik. 

„HK spilaði betur í dag, það er engin spurning, og áttu sigurinn skilið,“ sagði Einar meðal annars við mbl.is.

Einar Andri sagði FH-inga þurf að bæta flest í leik sínum ef miðað er við leikinn í dag og hugarfarið þyrfti að leiðrétta. Hann reiknar með langri rimmu á milli liðanna en vinna þarf þrjá leiki til að verða meistari.

Einar Andri Einarsson.
Einar Andri Einarsson. mbl.is/hag
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert