Nú vann Kiel

Aron Pálmarsson og félagar í Kiel unnu Flensburg í kvöld.
Aron Pálmarsson og félagar í Kiel unnu Flensburg í kvöld. AFP

Þýskalandsmeistarar Kielar í handknattleik, sem töpuðu óvænt fyrir Lemgo í 1. umferð þýsku 1. deildarinnar á laugardag, unnu í kvöld sinn fyrsta deildarsigur í vetur, þegar Kiel lagði Flensburg að velli í 2. umferð, 30:26.

Liðin mættust líka í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í Köln í vor, en þá hafði Flensburg betur og vann Meistaradeildina.

Aron Pálmarsson lék sinn fyrsta leik fyrir Kiel í deildinni í vetur og skoraði hann eitt mark í leiknum, en Tékkinn Filip Jicha var markahæstur hjá Kiel með 7 mörk. Alfreð Gíslason er þjálfari Kielar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert