Avraham: Komum bara með níu útileikmenn

Gal Moshe Avraham er einn leikreyndasti leikmaður Maccabi frá Ísrael sem sló Íslandsmeistara ÍBV úr EHF bikarnum í dag.  Avraham var ánægður með frammistöðu liðsins gegn Eyjamönnum.

„Við komum frekar fáliðaðir, aðeins með níu útileikmenn og tvo markmenn.  Auk þess erum við með mjög ungt lið og miklar breytingar hafa orðið frá því á síðasta tímabili.  Þetta voru fyrstu leikirnir okkar fyrir utan vináttu leiki, þannig að við erum ánægðir með þessa tvo leiki og við stóðum okkur vel,“ sagði Avraham en nánar er rætt við hann í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert