Enn einn stórsigur Barcelona

Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. Ljósmynd/fcbarcelona.com

Stórlið Barcelona vann í kvöld sjöunda sigur sinn í spænsku 1. deildinni í handknattleik þegar það lagði Huesca á heimavelli sínum, 43:29. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk úr fimm skotum í leiknum fyrir Barcelona sem er lang efst í deildinni og er eitt ósigrað.

Barcelona var með fimm marka forskot, 21:16, að loknum fyrri hálfleik og bætti heldur við forskot sitt í síðari hálfleik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert