Grótta og Fram enn á toppnum

Úr leik Fram og Stjörnunnar í Olís-deild kvenna í dag.
Úr leik Fram og Stjörnunnar í Olís-deild kvenna í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Tveimur leikjum dagsins af fjórum er lokið í Olís-deild kvenna í handknattleik. Grótta og Fram unnu sína leiki og eru í efstu tveimur sætunum með tíu stig.

Fram vann góðan sigur á Stjörnunni, 37:30, en staðan í hálfleik var 18:14 fyrir Fram eftir fjörugan fyrri hálfleik. Stjarnan náði mest að minnka muninn niður í tvö mörk í seinni hálfleik en ógnaði ekki forskoti Fram að ráði, sem uppskar að lokum sjö marka sigur.

Á Hlíðarenda vann Grótta fimm marka sigur á Val, 24:19. Heimakonur skoruðu einungis sex mörk í fyrri hálfleik, en að honum loknum var Grótta með öruggt forskot, 14:6. Valur náði að laga stöðuna áður en fyrir lauk en fimm marka sigur Gróttu staðreynd.

Fram og Grótta eru á toppnum sem fyrr segir, en Stjarnan er í fimmta sæti með sex stig og Valur í því níunda með tvö stig. Markaskorara má sjá hér að neðan.

Fram - Stjarnan 37:30

Mörk Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 8, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 6, Steinunn Björnsdóttir 5, Ásta Birna Gunnarsdóttir 5, María Karlsdóttir 4, Hekla Rún Ámundadóttir 4, Elísabet Gunnarsdóttir 2, Elva Þóra Arnarsdóttir 2, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 1.
Mörk Stjörnunnar: Þórhildur Gunnarsdóttir 9, Sólveig Lára Kjærnested 8, Helena Rut Örvarsdóttir 6, Stefanía Theodórsdóttir 4, Sandra Sif Sigurjónsdóttir 2, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 1.

Valur - Grótta 19:24

Mörk Vals: Sigurlaug Rúnarsdóttir 6, Bryndís Wöhler 6, Morgan Marie Þorkelsdóttir, Jónína Líf Ólafsdóttir 2, Hildur Marín Andrésdóttir 1, Marija Mugosa 1.
Mörk Gróttu: Laufey Ásta Guðmundsdóttir 5, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 5, Karólína Bæhrenz Lárudóttir 4, Anett Köbli 4, Eva Björk Davíðsdóttir 3, Lovísa Thompson 1, Ásthildur Embla Friðgeirsdóttir 1, Arndís María Erlingsdóttir 1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert