Atli Ævar markahæstur í sigri Guif

Atli Ævar skoraði sex mörk af línunni í dag.
Atli Ævar skoraði sex mörk af línunni í dag. Ljósmynd/guif.nu

Atli Ævar Ingólfsson og landsliðsmarkvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson fögnuðu í dag sigri með liði sínu Guif á Skövde í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik, 31:29.

Atli Ævar var einn tveggja markahæstu manna Guif í leiknum með sex mörk. Guif, sem leikur undir stjórn Kristjáns Andréssonar, er með 10 stig, fimm stigum frá toppnum. Skövde er með 9 stig.

Tandri Már Konráðsson skoraði fjögur mörk fyrir Ricoh sem tapaði á útivelli gegn Alingsås, 29:25. Alingsås komst þar með á toppinn en Ricoh er með 7 stig eftir 9 leiki.

Þá var Sunna Jónsdóttir ein þriggja markahæstu leikmanna Heid sem tapaði á útivelli gegn Spårvägen, 31:23, í sænsku kvennadeildinni. Sunna skoraði fimm mörk í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert