Atli Ævar Ingólfsson fór á kostum og skoraði 10 mörk Guif í sænska handboltanum í kvöld. Liðið tók þá á móti Tandra Má Konráðssyni og samherjum í Ricoh og hafði Guif betur 31:29.
Tandri skoraði 4 mörk fyrir Ricoh og var þriðji markahæstur en Atli skoraði mest allra á vellinum.
Aron Rafn Eðvarðsson ver mark Guif og Kristján Andrésson þjálfar liðið. Guif er nú í þriðja sæti með 22 stig eftir 18 leiki, sex stigum minna en topplið Kristianstad. Ricoh er í 11. sæti af 14 liðum með 15 stig.