Bjarki Már fór hamförum

Bjarka Má Elíssyni héldu engin bönd í kvöld þegar Eisenach …
Bjarka Má Elíssyni héldu engin bönd í kvöld þegar Eisenach vann Hildesheim með sjö marka mun. Ljósmynd/thsv-eisenach.de

Bjarki Már Elísson fór á kostum í kvöld þegar lið hans, Eisenach, vann Eintracht Hildesheim, 37:30, í þýsku 2. deildinni í handknattleik á heimavelli. Bjarki skoraði 15 mörk og var algjörlega óstöðvandi. Hannes Jón Jónsson skoraði eitt mark fyrir Eisenach.

Sjö af mörkum sínum skoraði Bjarki Már út vítaköstum en honum brást bogalistinn úr einu slíku. Leikið var á heimavelli Eisenach.

Eisenach er í 7. sæti deildarinnar með 29 stig eftir 23 leiki og er tíu stigum á eftir Leipzig sem trónir á toppnum sem fyrr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert