Bullandi vandræði frá upphafi

„Við vorum í bullandi vandræðum frá upphafi ef undan eru skildar fyrstu mínútnar þar sem við hengum aðeins í þeim," sagði Alfreð Örn Finnsson, annar þjálfari Vals, eftir 15 marka tap liðsins gegn Gróttu í úrslitum Coca Cola bikars kvenna í handknattleik í Laugardalshöll í dag.

„Enn hef ég enga skýringu á því af hverju við stóðum okkur ekki betur en þetta. Ef ég hefði skýringuna þá hefðum við eflaust spilað betur. En þetta var langt frá því að geta talist viðundandi," sagði Alfreð.

Nánar er rætt við Alfreð á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert