„Þetta var eins og unglingavinnan“

„Ég held að við höfum sýnt okkar rétta andlit í dag,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson við fjölmiðlamenn og sagðist hafa átt náðugan dag í markinu þegar Ísland rótburstaði Serbíu 38:22 í Laugardalshöll. 

Björgvin sagði íslenska hópinn hafa kortlagt Serbana vel: „Allir þrír þjálfarar okkar voru með allt klárt. Við undirbjuggum okkur líka fram að þessu. Við fáum send videó þegar við erum erlendis og erum með allt á hreinu þegar við mætum,“ útskýrði Björgvin en viðtalið við hann í heild sinni má nálgast í meðfylgjandi myndskeiði. 

Björgvin fangar sigrinum í kvöld að hætti hússins.
Björgvin fangar sigrinum í kvöld að hætti hússins. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert