Morkunas áfram hjá Haukum

Giedrius Morkunas, fyrir miðri mynd, fagnar eftir að Haukar urðu …
Giedrius Morkunas, fyrir miðri mynd, fagnar eftir að Haukar urðu Íslandsmeistarar í handknattleik fyrr í þessum mánuði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Handknattleiksmarkvörðurinn, Giedrius Morkunas,  verður áfram í herbúðum Íslandsmeistara Hauka á næstu leiktíð en nýr samningur þess efnis var undirritaður fyrr í dag. Morkunas hefur leikið með Haukum undanfarin þrjú ár en verið aðalmarkvörður síðustu tvö ár. 

Morkunas fór á kostum með Haukum í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn í vor. Frammistaða hans með Haukum undanfarin ár  hefur m.a. orðið til þess að hann hefur verið kallaður inn í landslið Litháens af og til á undanförnu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert