Gríðarlega sátt

Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, þjálfari ÍBV var að vonum sátt með öruggan sigur liðs síns á Stjörnunni í Olís deild kvenna í handknattleik í dag en leiknum lauk með 6 marka sigri ÍBV 31:25.

„Ég er gríðarlega sátt, virkilega mikilvægt að vera komnar fjórum stigum á undan Stjörnunni og búnar með Fram og Stjörnuna sem er ótrúlega sterkt.“

Eyjastúlkur spiluðu hrikalega góða vörn og var markvarslan ekki verri. „Stórkostlegur varnarleikur og Erla frábær fyrir aftan en þetta kom mér ekki á óvart, þær eru búnar að vera svona á æfingum."

Viðtalið í heild má sjá í meðfylgj­andi mynd­skeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert