Ellefu mörk Hannesar ekki nóg

Hannes Jón Jónsson.
Hannes Jón Jónsson. Ljósmynd/handball-westwien.at

Hannes Jón Jónsson, spilandi þjálfari austurríska liðsins West Wien, skoraði 11 mörk í dag þegar lið hans sótti heim Schwaz í efstu deild handboltans þar í landi.

Framlag þjálfarans dugði ekki til því Schwaz vann leikinn 38:32 eftir jafnan slag lengst af en eftir að Hannes minnkaði muninn í 33:31 fimm mínútum fyrir leikslok gerðu heimamenn út um leikinn á lokakaflanum.

West Wien hefur ekki farið vel af stað og tapað fimm af fyrstu sjö leikjum sínum, og er í áttunda sæti af tíu liðum í deildinni. Hannes tók við liðinu af Erlingi Richardssyni í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert