Anna Katrín með 16 mörk í sigri Gróttu

Unnur Ómarsdóttir var næstmarkahæst í liði Gróttu í kvöld með …
Unnur Ómarsdóttir var næstmarkahæst í liði Gróttu í kvöld með sjö mörk. Styrmir Kári

Grótta mætti Fjölni á heimavelli sínum, Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi í Olís deild kvenna í kvöld. Heimakonur í Gróttu fóru með afar öruggan sigur af hólmi, en lokatölur í leiknum urðu 41:11 Gróttu í vil.

Anna Katrín Stefánsdóttir var langmarkahæst í liði Gróttu með 16 og Berglind Benediktsdóttir var atkvæðamest í liði Fjölnis með fjögur mörk.

Grótta færði sig upp í þriðja sæti deildarinnar með þessum sigri, en liðið hefur 19 stig eftir 11 umferðir. Fjölnir hefur hins vegar átta stig og situr í áttunda sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert