Arnór Þór markahæstur

Arnór Þór Gunnarsson
Arnór Þór Gunnarsson mbl.is/Golli

Arnór Þór Gunnarsson var í stuði með liði Bergischer þegar liðið lagði Balingen, 31:26, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag.

Arnór var markahæstur á vellinum en hann skoraði 8 mörk í leiknum.

Lærisveinar Erlings Richardssonar í liði Füchse Berlin fögnuðu sigri Lübbecke á útivelli, 32:25. Bjarki Már Elísson lék ekki með Berlínarliðinu.

Ólafur Bjarki Ragnarsson var ekki á meðal markaskorara hjá Eisenach í tapi gegn Flensburg, 35:18.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert