Jónatan tekur við KA/Þór

Jónatan Þór Magnússon í leik með Akureyri fyrir nokkrum árum.
Jónatan Þór Magnússon í leik með Akureyri fyrir nokkrum árum. mbl.is/hag

Jónatan Þór Magnússon verður næsti þjálfari kvennaliðs KA/Þórs í handknattleik en hann snýr nú aftur til Akureyrar eftir sex ára dvöl í Noregi. Þetta er samkvæmt áreiðanlegum heimildum mbl.is.

Jónatan var lengi leikmaður með KA og svo Akureyri en hann fór til Kristiansund í Noregi sem leikmaður og tók síðan við sem þjálfari karlaliðs félagsins en hann hefur stýrt því undanfarin þrjú ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert