Theodór meiddur

Theodór Sigurbjörnsson
Theodór Sigurbjörnsson mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Örvhenti hornamaðurinn Theodór Sigurbjörnsson, markahæsti leikmaður Olís-deildar karla í handknattleik, meiddist í leik ÍBV gegn Gróttu í gærkvöld en hann gerði þar átta mörk í sigri Eyjamanna.

Theodór tognaði aftan í læri og missir fyrir vikið af leik ÍBV og Vals á fimmtudag, í lokaumferð ársins. Hann hefur verið í landsliðshópnum að undanförnu, var í leikjunum gegn Tékkum og Úkraínumönnum í undankeppni EM á dögunum, og hefur þótt líklegur til að fara á heimsmeistaramótið í Frakklandi í næsta mánuði.

Nú er mjög tvísýnt að Theodór verði heill heilsu í tæka tíð til að geta tekið þátt í því verkefni. vs@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert