Íslendingaliðin unnu

Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði fjögur mörk.
Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði fjögur mörk. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Íslendingaliðin Holstebro og Aalborg unnu bæði leiki sína í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Vignir Svavarsson skoraði þrjú mörk fyrir Holstebro sem hafði betur gegn Kolding, 24:23, á útivelli. 

Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði fjögur mörk og Arnór Atlason og Janus Daði Smárason skoruðu eitt mark hvor í 37:34 sigri Aalborg á GOG. 

Aalborg er með fjögurra stiga forskot á Holstebro og Bjerringbro/Silkeborg á toppi deildarinnar. Aron Kristjánsson þjálfar lið Aalborg. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert